Reglugerð um héraðsskjalasöfn

Málsnúmer 2002051

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 642. fundur - 03.03.2020

Lagt fram erindi Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 18.02.2020 er varðar mál nr. 32/2020 reglugerð um héraðsskjalasöfn sem er í umsagnarferli á samráðsgátt til og með 13.03.2020.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála og forstöðukonu Héraðsskjalasafns Fjallabyggðar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 644. fundur - 17.03.2020

Á 642. fundi bæjarráðs samþykkti ráðið að vísa erindi Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, dags. 18.02.2020 er varðaði mál nr. 32/2020 reglugerð um héraðsskjalasöfn sem var í umsagnarferli í samráðsgátt til og með 13.03.2020 til deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmála og forstöðukonu Héraðsskjalasafns Fjallabyggðar.

Lögð fram til kynningar umsögn forstöðukonu Héraðsskjalasafns Fjallabyggðar, dags. 11.03.2020. Umsögnin hefur þegar verið send í samráðsgátt stjórnvalda.