Ósk um styrk í formi rútuferða vegna jólaskemmtunar nemendafélagsins Trölla

Málsnúmer 1911079

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 631. fundur - 03.12.2019

Lagt fram erindi nemendafélagsins Trölla við Menntaskólann á Tröllaskaga dags. 27. nóvember 2019 er varðar ósk um styrk í formi rútuferða á milli byggðakjarna vegna jólaskemmtunar nemendafélagsins.

Bæjarráð samþykkir að styrkja nemendafélagið Trölla um rútuferðir vegna jólaskemmtunar. Kostnaður rúmast innan gildandi fjárhagsáætlunar 2019.