Jafnlaunavottun - vinnsla

Málsnúmer 1910108

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 626. fundur - 29.10.2019

Lögð fram jafnlaunastefna Fjallabyggðar og jafnréttisáætlun Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir jafnlaunastefnuna og vísar jafnréttisáætlun til kynningar og uppfærslu í félagsmálanefnd.

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 122. fundur - 19.02.2020

Lögð fram til kynningar verkefnisáætlun fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis Fjallabyggðar.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 669. fundur - 29.09.2020

Lagt fram til kynningar erindi Guðmundar Sigbergssonar fh. iCert, dags. 22.09.2020 þar sem fram kemur að Fjallabyggð hefur hlotið vottun á að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins uppfylli kröfur sem tilgreindar eru í staðlinum ÍST 85:2012.

Jafnréttisstofu hefur verið tilkynnt um vottunina.