Boð á norræna ráðstefnu: The Working Conditions of Tomorrow - nýjar áskoranir á vinnumarkaði og vinnuumhverfi

Málsnúmer 1910059

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 625. fundur - 22.10.2019

Lagt fram til kynningar erindi Þórunnar Sveinsdóttur fh. Vinnueftirlitsins, dags. 16.10.2019 þar sem fram kemur að norræna ráðstefnan „The Working Conditions of Tomorrow“ - nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu verður haldin á Grand Hótel 7. nóvember nk. frá kl. 8:30-14:50
Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um breytingar á vinnumarkaði sem geta haft áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar og starfsaðstæður, hvernig hægt er að skapa góða vinnustaði sem stuðla að heilsu, öryggi og réttindum starfsfólks og skipulagt samstarf þvert á landamæri og innanlands til þess að uppræta félagsleg undirboð og brotastarfsemi.