Upplýsingabeiðni vegna skýrslu um samkeppnisrekstur opinberra aðila

Málsnúmer 1909040

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 620. fundur - 17.09.2019

Lagt fram erindi Ingva Más Pálssonar og Heimis Skarphéðinssonar fh. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dags. 03.09.2019 þar sem óskað er eftir upplýsingum vegna skýrslu um samkeppnisrekstur opinbera aðila. Óskað er eftir svari eigi síðar en 1. október nk.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála að svara erindinu.