Umferðaöryggi í Fjallabyggð

Málsnúmer 1909034

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 620. fundur - 17.09.2019

Bæjarráð samþykkir að óska eftir umsögn og/eða tillögum bæjarstjóra, deildarstjóra tæknideildar, og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála er varðar aukið öryggi gangandi og hjólandi vegfarendur, einkum skólabarna í Fjallabyggð.


Bæjarráð Fjallabyggðar - 621. fundur - 24.09.2019

Á 620. fundi bæjarráðs óskaði ráðið eftir umsögn og/eða tillögum bæjarstjóra, deildarstjóra tæknideildar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála varðandi aukið öryggi gangandi og hjólandi vegfarendur, einkum skólabarna í Fjallabyggð.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 18.09.2019 um þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til með tilliti til aukins umferðaröryggis á þjóðvegi í gegnum Ólafsfjörð og Siglufjörð auk tillaga um næstu skref til þess að auka umferðaröryggi, sérstaklega skólabarna.

Bæjarráð samþykkir framkomið minnisblað og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.