Vatnslitamyndir af snjóflóðarvarnargörðum á Siglufirði

Málsnúmer 1908033

Vakta málsnúmer

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar - 56. fundur - 04.09.2019

Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt og listmálari hélt sýningu á vatnslitaverkum í Herhúsinu í ágúst sl. Meðal annarra listaverka voru 12 vatnslitaverk af snjóflóðavarnargörðum ofan Siglufjarðar. Myndirnar sýna hönnun og lögun snjóflóðavarnargarðanna og samspil þeirra við náttúru og byggðina í Siglufirði. Myndirnar eru falleg heimild um þessi miklu mannvirki.
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt og teiknistofa hans, Landslag ehf., voru tilnefnd til evrópskra verðlauna í landslagsarkitektúr á sínum tima fyrir hönnun snjóflóðavarnargarða á Siglufirði og hlutu viðurkenningu. Snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði hafa vakið verulega athygli meðal fagfólks í hönnun erlendis.
Reynir Vilhjálmsson hefur boðið Fjallabyggð vatnslitamyndirnar af snjóflóðargörðum á Siglufirði til kaups og þykja þessar myndir hvergi eiga betur heima en í eigu sveitarfélagsins.
Markaðs- og menningarnefnd þakkar boð Reynis og tekur undir það að myndirnar eigi heima í eigu sveitarfélagsins.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 620. fundur - 17.09.2019

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála, dags 19.08.2019 þar sem fram kemur að Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt bauð Fjallabyggð vatnslitamyndir af snjóflóðargörðum á Siglufirði til kaups, samtals 12 að tölu. Myndirnar sýna hönnun og lögun snjóflóðavarnargarðanna og samspil þeirra við náttúru og byggðina í Siglufirði og er falleg heimild um þessi miklu mannvirki.

Bæjarráð þakkar Reyni gott boð og samþykkir að kaupa myndirnar. Kostnaður kr. 450.000 skiptist í tvennt og er kr. 225.000 vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2020.
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 15/2019 að upphæð kr. 225.000.- við deild 21550, lykill 2990 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé.