Kvörtun vegna fugla á tjörninni í Ólafsfirði

Málsnúmer 1905067

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 607. fundur - 04.06.2019

Lagt fram erindi Hönnu Brynju Axelsdóttur fh. Kristínar Ólafsdóttur íbúa að Ólafsvegi 2, Ólafsfirði, dags. 27. maí 2019 varðandi ágang og hávaða við heimili hennar frá öndum á tjörninni.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar úrvinnslu málsins.