Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019

Málsnúmer 1904005F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Fjallabyggðar - 173. fundur - 12.04.2019

  • .1 1903101 Sumaropnun sundlauga Fjallabyggðar 2019
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019 Undir þessum lið sat Haukur Sigurðsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva.
    Sumaropnun sundlauga Fjallabyggðar sumarið 2019 verður sem hér segir:

    Mánudagur - föstudagur kl. 06:30 - 19:00
    Laugardagur - sunnudagur kl. 10:00 - 18:00.

    Eina helgi í mánuði verður opnun á föstudegi lengd til kl. 21.00 og opnunartími sunnudags stytt um tvær klukkustundir í staðinn. Opnun þann sunnudag yrði kl. 12.00 - 18.00.

    Á Siglufirði verður um að ræða síðustu helgi í júní, júlí og ágúst. Í Ólafsfirði verður þessi breytta opnun 2. helgi í áðurnefndum þremur mánuðum.
    Bókun fundar Til máls tóku Jón Valgeir Baldursson og S. Guðrún Hauksdóttir.

    Afgreiðsla 70. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 173. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .2 1903078 Leikskóli Fjallabyggðar - starfsmannakönnun
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019 Niðurstöður úr starfsmannakönnun í Leikskóla Fjallabyggðar lagðar fram til kynningar. Áfram verður unnið með niðurstöðurnar. Bókun fundar Til máls tók S. Guðrún Hauksdóttir.

    Afgreiðsla 70. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 173. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .3 1711027 Málefni Leikskóla Fjallabyggðar - stjórnendaráðgjöf
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019 Greinargerð að lokinni stjórnendaþjálfun við Leikskóla Fjallabyggðar lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 173. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .4 1901090 Spurningalisti til sveitarfélaga varðandi úthlutun fjármagns til nemenda með sérþarfir
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Til máls tók S. Guðrún Hauksdóttir.

    Afgreiðsla 70. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 173. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.
  • .5 1904022 Fíkniefnafræðsla - opinn fundur í Tjarnarborg
    Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 70. fundur - 8. apríl 2019 Mánudaginn 29.apríl kl. 19:30 er fyrirhuguð fíkniefnafræðsla í Tjarnarborg. Fundurinn er í samstarfi við Lögregluna á Norðurlandi eystra og á fundinn koma tveir lögreglumenn úr fíkniefnadeild lögreglunnar. Þá hefur verið óskað eftir fræðslu fyrir unglingastig grunnskólans um sama málefni. Fræðslu- og frístundanefnd hvetur alla íbúa Fjallabyggðar að láta sig málin varða og mæta á fundinn. Bókun fundar Afgreiðsla 70. fundar fræðslu- og frístundanefndar staðfest á 173. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum.