Samningur um rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal Siglufirði 2019-2022

Málsnúmer 1903102

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 600. fundur - 10.04.2019

Lögð fram til kynningar drög að samningi um leigu og rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal.

Bæjarráð samþykkir að fjalla áfram um samninginn.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 601. fundur - 23.04.2019

Lögð fram drög að endurnýjuðum samningi milli Fjallabyggðar og Leyningsáss ses. um leigu og rekstur skíðasvæðisins í Skarðsdal fyrir tímabilið 1. júní 2019 til 1. júní 2022.

Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.