Námskeið fyrir starfsmenn ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við innflytjendur

Málsnúmer 1903062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 598. fundur - 26.03.2019

Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 19.03.2019 er varðar námskeið um menningarnæmi og færni fyrir starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem haldið verður dagana 25.-28. mars í Reykjavík, á Akureyri og á Reyðarfirði. Námskeiðinu verður einnig streymt frá Háskólanum á Akureyri. Námskeiðið er bæði ætlað fólki í framlínu þjónustustofnana, svo sem í þjónustuverum sveitarfélaga, og sérfræðingum í nærþjónustu svo sem félagsráðgjöfum og kennurum.

Bæjarráð vísar erindinu til deildarstjóra félagsmáladeildar og deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála.