Ósk um aðstöðu Tengis vegna ljósleiðaravæðingar á Siglufirði

Málsnúmer 1902062

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 593. fundur - 20.02.2019

Lagt fram erindi Steinmars H. Rögnvaldssonar f.h. Tengis hf, dags. 13.02.2019 er varðar aðstöðu á jarðhæð Ráðhússins, Gránugötu 24, vegna ljósleiðaravæðingar á Siglufirði.

Bæjarráð samþykkir að veita Tengi hf. aðstöðu á jarðhæð Ráðhússins vegna ljósleiðaravæðingar á Siglufirði og felur bæjarstjóra og deildarstjóra tæknideildar að ganga frá samningi þess efnis.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 631. fundur - 03.12.2019

Lögð fram drög að leigusamningi um aðstöðu fyrir tækjabúnað Tengis ehf. í Ráðhúsi Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og felur deildarstjóra tæknideildar að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.