Ósk um P stæði, staðsetningu ruslatunna og viðgerð á gangstétt

Málsnúmer 1812021

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 235. fundur - 16.01.2019

Lagt fram erindi Sigurlaugs Odds Jónssonar, dagsett 6.desember 2018.
1. Ekki er hægt að verða við því að merkja einkastæði við Hólaveg 12 og 16 þar sem öllum er heimilt að leggja í götunni.
2. Staðsetning ruslatunna þarf að vera innan lóðarmarka, ekki er heimilt að hafa ruslatunnur á gangstétt þar sem þær skerða aðgengi gangandi vegfarenda.
3. Nefndin þakkar ábendingu um gangstétt.