Átakshópur húsnæðismála um aukið framboð á íbúðum

Málsnúmer 1812019

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 585. fundur - 11.12.2018

Lagt fram erindi Átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði, dags. 06.12.2018 þar sem þess er óskað að sveitarfélagið veiti ákveðnar upplýsingar um stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu eigi síðar en 14. desember nk.
Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að svara erindinu.