Tillaga H-lista að deiliskipulagsbreytingu miðbæjar Siglufjarðar

Málsnúmer 1811013

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 234. fundur - 05.12.2018

Lögð fram tillaga H-lista að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar, dagsett 4.nóvember 2018. Lagt er til að suðurhluta Lækjargötu milli Aðalgötu og Gránugötu verði skilgreint sem útisvæði í stað bílastæða skv. meðfylgjandi teikningu.
Synjað
Tillögu H-lista hafnað með fjórum atkvæðum (Brynja I. Hafsteinsdóttir, Hjördís H. Hjörleifsdóttir, Ingibjörg G. Jónsdóttir, Konráð K. Baldvinsson) gegn einu (Helgi Jóhannsson).