Námskeið fyrir skólanefndir - 26. nóvember í Reykjavík - og vefnámskeið

Málsnúmer 1811007

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 580. fundur - 06.11.2018

Lagt fram erindi Sambands Íslenskra sveitarfélaga, dags. 01.11.2018 er varðar miðlægt námskeið fyrir skólanefndir sem haldið verður á Grand hóteli 26. nóvember nk. frá kl. 8:30-14:15. Streymt verður frá námskeiðinu og skólanefndir um allt land, sem ekki mæta á Grand, hvattar til að sitja námskeiðið í sameiningu í heimabyggð og fylgjast með útsendingu.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til fræðslu- og frístundanefndar.