Fulltrúaráð Eyþings og Samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Norðurlands eystra

Málsnúmer 1811004

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 580. fundur - 06.11.2018

Lagt fram erindi stjórnar Eyþings dags. 01.11.2018 þar sem fram kemur að Stjórn Eyþings ákvað á fundi sínum 23. október sl. að kalla saman fulltrúaráð Eyþings og Samráðsvettvang Sóknaráætlunar Norðurlands eystra þann 23. nóvember nk. Fulltrúaráðsfundurinn verður frá kl. 12-14 og samráðsvettvangurinn frá kl 14.15-16. Fundirnir verða á Akureyri, nánari dagskrá og staðsetning verður send út síðar.

Fulltrúar Fjallabyggðar í Fulltrúaráði Eyþings eru Gunnar I. Birgisson og Helga Helgadóttir.