Yfirlýsing um afsal á forkaupsrétti - Júlía Blíða SI-173

Málsnúmer 1810010

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 574. fundur - 02.10.2018

Tekið fyrir erindi frá Reyni Karlssyni dags. 2.október 2018, þar sem Fjallabyggð er boðinn forkaupsréttur af Júlíu Blíðu SI-173.

Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti og felur deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála afgreiðslu málsins.