Útleiga á íþróttasal grunnskólans

Málsnúmer 1808055

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 59. fundur - 30.08.2018

Síðustu 2-3 ár hefur eftirspurn eftir útleigu íþróttasals grunnskólans fyrir barnaafmæli farið vaxandi. Umgengni um salinn hefur verið misjöfn og misvel gengið frá sem kallar á aukna ræstingu og vinnu utan dagvinnutíma. Nefndin leggur til að útleigu á íþróttasal undir barnaafmæli verði hætt. Áfram verður salurinn leigður út fyrir íþróttatengda viðburði.