Ábending vegna umhverfis hafnarinnar í Ólafsfirði

Málsnúmer 1808025

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 229. fundur - 15.08.2018

Lögð fram til kynningar ábending íbúa sem barst í gegnum ábendingahnapp heimasíðu Fjallabyggðar þann 5. júlí 2018. Óskað er eftir því að hreinsað verði til við höfnina í Ólafsfirði og svæðið gert meira aðlaðandi.
Nefndin þakkar ábendinguna og bendir á að stöðugt er unnið að því að fegra umhverfið og heldur sú vinna áfram.