Staðsetning ruslatunna við Aðalgötu 32 Siglufirði

Málsnúmer 1807053

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 229. fundur - 15.08.2018

Lagt fram erindi Katrínar Sifjar Andersen þar sem sótt er um leyfi fyrir ruslatunnum fyrir utan Aðalgötu 32, við Lækjargötu.
Nefndin hafnar þeirri staðsetningu sem lögð er fram í erindinu þar sem hún er á gangstétt og kemur til með að hefta aðgengi gangandi vegfarenda um svæðið. Tæknideild falið að vinna að úrlausn málsins.