Umsókn um byggingarleyfi - gluggabreytingar á Pálshúsi

Málsnúmer 1805035

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 226. fundur - 14.05.2018

Lagt fram erindi Þorsteins Ásgeirssonar f.h. Sigurhæðar ses dagsett 11. maí 2018. Sótt er um leyfi til að færa glugga á norðurhlið hússins í upprunalegt form ásamt því að setja liggjandi timburklæðningu fyrir ofan vörugeymslu á norðurhlið eins og var á húsinu upprunalega.
Samþykkt
Erindi samþykkt.