Vettvangsferð í Hornbrekku

Málsnúmer 1804084

Vakta málsnúmer

Stjórn Hornbrekku - 6. fundur - 08.05.2018

Elísa Rán Ingvarsdóttir, hjúkrunarforstjóri og forstöðumaður kynnti fyrir stjórninni viðhalds- og framkvæmdarverkefni sem unnið hefur verið að í Hornbrekku síðustu misserin.
Bætt hefur verið úr aðstöðu í matsal með endurbótum á býtibúri, auk þess sem búnaður og tæki hafa verið endurnýjuð.
Stjórnin fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur í þessum efnum. Stjórnin þakkar fyrir vel heppnaða heimsókn og góðar móttökur.