Athugasemd vegna svæðis austan Bylgjubyggðar 1-11 Ólafsfirði

Málsnúmer 1804062

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 225. fundur - 30.04.2018

Lagt fram erindi íbúa í raðhúsi við Bylgjubyggð 1-11, dagsett 10. apríl 2018. Óskað er eftir því að bæjaryfirvöld Fjallabyggðar skoði hvort ekki sé hægt að klára svæðið austan raðhússins.
Erindi svarað
Hluti umrædds svæðis tilheyrir bústöðum Brimnes hótels. Tæknideild falið að láta lagfæra þann hluta sem snýr að Fjallabyggð og að senda forsvarsmönnum Brimnes hótels bréf með beiðni um endurbætur.