Bréf til Vegagerðarinnar frá ALMEY

Málsnúmer 1802063

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 543. fundur - 20.02.2018

Lagt fram til kynningar bréf frá Almannavarnarnefnd Eyjafjarðar til Vegagerðarinnar er varðar fjarskipti og öryggi í göngum í umdæmi Almannavarna Eyjafjarðar. Telur nefndin mikilvægt að komið verði upp útvarpssendum í Héðinsfjarðargöngum og Múlagöngum, og að komið verði upp búnaði til að stýra umferð flutningabíla í Strákagöngum.

Bæjarráð fagnar bréfinu og tekur undir það sem þar kemur fram.