Vorfundur samtaka félagsmálastjóra

Málsnúmer 1802028

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 542. fundur - 13.02.2018

Tekið fyrir erindi frá Hirti Hjartarsyni félagsmálastjóra Fjallabyggðar þar sem hann óskar eftir fjárheimild til að mæta kostnaði við að halda vorfund Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi 3.-4. maí næstkomandi. Samtökin héldu síðast fund sinn í Fjallabyggð árið 2001. Áætlaður kostnaður er 250.000 kr.

Bæjarráð samþykkir að veita félagsmálastjóra fjárheimild að upphæð 250.000 kr. og vísar kostnaðinum til viðauka við fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.