Kraftlyftingafélag Ólafsfjarðar

Málsnúmer 1802007

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 542. fundur - 13.02.2018

Tekin fyrir styrktarbeiðni frá Kraftlyftingafélagi Ólafsfjarðar vegna kaupa á ýmsum búnaði. Óskað er eftir styrk að upphæð 200.000 kr.

Ekki náðist að senda inn umsókn fyrir gerð fjárhagsáætlunar árið 2018 vegna óvissu um húsnæðismál félagsins. Úr því hefur verið bætt í samstarfi við Fjallabyggð. Bæjarráð samþykkir að veita félaginu styrk að upphæð 200.000 kr og vísar upphæðinni til viðauka.