Samstarfssamningur MTR og Fjallabyggðar - ecoMEDIAeurope

Málsnúmer 1711079

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 533. fundur - 06.12.2017

Tekin fyrir drög að samningi um samstarf Fjallabyggðar við Menntaskólann á Tröllaskaga vegna ecoMEDIAeurope ráðstefnu sem haldin verður af Menntaskólanum á Tröllaskaga í október 2018. Tilgangur samstarfsins er að Fjallabyggð styðji Menntaskólann á Tröllaskaga vegna ráðstefnunnar og að Menntaskólinn á Tröllaskaga kynni Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og samþykkir styrk að upphæð kr. 200.000.