Umsókn um byggingarleyfi-Norðurtún 3 Siglufirði

Málsnúmer 1706032

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 214. fundur - 20.06.2017

Með innsendu erindi dags. 13. júní 2017 óskar Ómar Óskarsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Norðurtún 3 samkvæmt meðfylgjandi gögnum.

Nefndin felur deildarstjóra tæknideildar að veita umbeðið leyfi þegar fullnægjandi gögn vegna málsins hafa borist.