Leigusamningur við Rarik vegna spennistöðvar á Bæjarbryggju

Málsnúmer 1701064

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 484. fundur - 24.01.2017

Lögð fram drög að leigusamningi milli Fjallabyggðar og Rarik um húsnæði spennistöðvar á Bæjarbryggju Siglufirði.
Áætlað er að leigutíminn hefjist 1. janúar 2017 og sé til 99 ára.
Leiga fyrir tímabilið skal greiðast við undirskrift samnings.

Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 515. fundur - 22.08.2017

Gengið hefur verið frá lóðarleigusamningi við RARIK vegna spennistöðvar á Bæjarbryggju (Hafnarbryggju). RARIK greiðir útlagðan kostnað vegna byggingar spennistöðvarinnar.