Samningur um löndunarþjónustu í Ólafsfjarðarhöfn

Málsnúmer 1611087

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 478. fundur - 06.12.2016

Bæjarstjóri, jafnframt hafnarstjóri kynnti bæjarráði drög að samningi um löndunarþjónustu í Ólafsfjarðarhöfn við
Betri vörur ehf kt.450508-2250 Múlavegi 7 Ólafsfirði.

Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn. Jafnframt vísar bæjarráð samningi til kynningar í hafnarstjórn.

Hafnarstjórn Fjallabyggðar - 87. fundur - 16.12.2016

Lagður fram undirritaður samningur um löndunarþjónustu í Ólafsfjarðarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samning.