Beiðni um styrk vegna Karnival dýranna. Tónleikar í Fjallabyggð

Málsnúmer 1611086

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 478. fundur - 06.12.2016

Lögð fram beiðni frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, dagsett 29. nóvember 2016, um styrk vegna tónlistarflutnings í Fjallabyggð vorið 2017.

Búið er að afgreiða fjárhagsáætlun 2017, en bæjarráð er tilbúið að veita styrk til verkefnisins, sem nemur húsaleigu í Menningarhúsi Fjallabyggðar, Tjarnarborg ef hljómsveitin vill nýta sér þá aðstöðu.