Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning 2017

Málsnúmer 1611064

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 477. fundur - 29.11.2016

Lagt fram til kynningar, erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, dagsett 17. nóvember 2016, þar sem vakin er athygli sveitarstjórna og skólanefnda á mikilvægu framtaki til að kynna iðn- og verkgreinar á Íslandi, en dagana 16. - 18. mars 2017 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í Reykjavík.

Bæjarráð vísar erindinu til deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála og skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar.