Nýjar úthlutunarreglur Námsgagnasjóðs

Málsnúmer 1611053

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 476. fundur - 22.11.2016

Lagðar fram til kynningar upplýsingar Námsgagnasjóðs um nýjar úthlutunarreglur sjóðsins.

Námsgagnasjóður var stofnaður á grundvelli laga um námsgögn nr. 71/2007 og hefur það hlutverk að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa. Þann 31. október 2016 tóku við nýjar úthlutunarreglur Námsgagnasjóðs nr. 899. Helstu breytingar með tilkomu úthlutunarreglnanna eru að:
Grunnskólar þurfa ekki lengur að skila inn skilagrein til sjóðsins.
Ábyrgð á eftirfylgd með ráðstöfun fjármagns úr sjóðnum er færð til rekstraraðila grunnskóla, þ.e.a.s. að þeim er ætlað að fylgjast með því að grunnskólar nýti fjármagnið samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins.
Námsgagnasjóður getur kallað eftir gögnum um ráðstöfun úthlutunarfjár frá rekstraraðilum grunnskóla.
Vakin er athygli á því að samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins er grunnskólum einungis heimilt að ráðstafa fjármunum úr Námsgagnasjóði til kaupa á námsgögnum frá lögaðilum öðrum en Menntamálastofnun og skulu námsgögnin samrýmast markmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Óheimilt er að verja fjármunum úr Námsgagnasjóði til búnaðar- og tækjakaupa.

Bæjarráð vísar nýjum úthlutunarreglum til deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningardeildar og til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

Fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar - 35. fundur - 09.01.2017

Lagt fram
Lagt fram til kynningar nýjar úthlutunarreglur Námsgagnasjóðs.