Könnun um upplýsingasíðu fyrir ferðamenn

Málsnúmer 1610073

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 471. fundur - 25.10.2016

Lögð fram fyrirspurn, dagsett 18. október 2016, sem send er á alla sveitar-, bæjar- og borgarstjóra á Íslandi ásamt forsetum bæjarstjórna og oddvita sveitarfélaga um mögulega stofnun upplýsingasíðu/upplýsingamiðstöðvar á netinu fyrir ferðamenn á Íslandi.

Bæjarráð felur markaðs- og menningarfulltrúa, Lindu Leu Bogadóttur að svara fyrirspyrjanda.