Kauptilboð - Lindargata 2

Málsnúmer 1610069

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 482. fundur - 10.01.2017

Lagt fram kaupsamningur um kaup á Lindargötu 2 Siglufirði af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, undirritaður í desember 2016 með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Kaupverð er 22,5 m.kr. og greiðist með skuldabréfi til 25 ára.

Bæjarráð samþykkir kaupsamning, afsal og skuldabréf og vísar til viðauka við fjárhagsáætlun 2016.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 484. fundur - 24.01.2017

Á 482. fundi bæjarráðs, 10. janúar 2017, samþykkti bæjarráð kaupsamning, afsal og skuldabréf vegna kaupa á Lindargötu 2 Siglufirði af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Kaupverð var 22,5 m.kr. sem greiðist með skuldabréfi til 25 ára.

Lögð fram greinargerð deildarstjóra félagsmáladeildar, Hjartar Hjartarsonar vegna kaupanna.

Bæjarráð samþykkir að vísa breytingum á rekstrarfyrirkomulagi til viðauka við fjárhagsáætlun 2017, en gert var ráð fyrir í áætlun að húsnæðið yrði leigt áfram af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs.