Áskorun um að koma upp leikvelli á Hlíðarvegi Ólafsfirði

Málsnúmer 1607041

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 459. fundur - 02.08.2016

Lagt fram erindi frá Bergdísi Helgu Sigursteinsdóttur, Hlíðarvegi 23 Ólafsfirði, þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að þau komi upp leikvelli við Hlíðarveg.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið og samþykkir að vísa erindinu til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.