Göngustígur meðfram austurbakka Ólafsfjarðarvatns - undirskriftarlisti

Málsnúmer 1606014

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 449. fundur - 14.06.2016

Lagður fram undirskriftarlisti 248 íbúa Fjallabyggðar um að ljúka við gerð malbikaðs göngustígs meðfram austurbakka Ólafsfjarðarvatns, fram að landamerkjum að Hlíð.

Bæjarráð lítur jákvætt á málið og vísar til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar.
Jafnframt er deildarstjóra tæknideildar falið að kostnaðarmeta verkefnið.