Kostnaðarhlutdeild þjónustuaðila og íbúa vegna húsaleigu í sérstöku húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk

Málsnúmer 1602051

Vakta málsnúmer

Félagsmálanefnd Fjallabyggðar - 96. fundur - 25.02.2016

Lögð fram tillaga um að breytt kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins í húsaleigu á sambýlinu að Lindargötu 2, Siglufirði muni taka gildi jafnhliða gildistöku nýrrar reglugerðar um sérstök húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.