Fréttir af flugi - stuðningur við millilandaflug

Málsnúmer 1511039

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 421. fundur - 24.11.2015

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið, að tillögu forsætisráðherra, að fela iðnaðar- og viðskiptaráðherra að hefja undirbúning að stofnun Markaðsþróunarsjóðs og Áfangastaðasjóðs með það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.

Bæjarráð fagnar ákvörðun Ríkisstjórnar Íslands.