Yfirtaka Fjallabyggðar á Siglufjarðarflugvelli

Málsnúmer 1510001

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 411. fundur - 06.10.2015

Tekið fyrir erindi Isavia um yfirtöku Fjallabyggðar á mannvirkjum Siglufjarðarflugvallar, dagsett 28. september 2015.

Bæjarráð telur drög Isavia að samkomulagi ófullnægjandi og ekki í samræmi við það sem hefur farið á milli aðila í málinu og felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum.