Hraðakstur flutningabíla og fl. á Aðalgötunni á Ólafsfirði

Málsnúmer 1509102

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 191. fundur - 08.10.2015

Lagt fram erindi Þorsteins Sveinssonar þar sem óskað er eftir því að bæjaryfirvöld beiti sér fyrir því að minnka hraðakstur við Aðalgötuna í Ólafsfirði, aðallega við Tjarnarborg þar sem tónskólinn er staðsettur og mörg börn á ferli.

Í gildi er umferðaröryggisáætlun þar sem fyrirhugaðar eru hraðatakmarkanir á Aðalgötu í Ólafsfirði. Vísað til fjárhagsáætlunar 2016.