Lög um verndarsvæði í byggð - innleiðing

Málsnúmer 1509026

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 410. fundur - 28.09.2015

Tekið fyrir bréf frá forsætisráðuneytinu, dagsett 3. september 2015, þar sem fram kemur að síðast liðið vor samþykkti Alþingi lög um verndarsvæði í byggð, nr. 87/2015. Er lögunum ætlað að stuðla að vernd og varðveislu byggða sem hafa sögulegt gildi og ná þau til þéttbýlis og byggðarkjarna utan þéttbýlis sem ástæða er til að varðveita vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis. Í ljósi þess að sveitarfélögum er ætlað mikilvægt hlutverk í lögunum boðaði Forsætisráðuneytið og Minjastofnun Íslands til kynningarfunda um hin nýsamþykktu lög víða um landið.

Lagt fram til kynningar.