Varðar húseignina að Norðurgötu 4b á Siglufirði

Málsnúmer 1509015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 410. fundur - 28.09.2015

Lagt fram erindi eiganda Norðurgötu 4a Siglufirði, dagsett 7. september 2015, þar sem þess er farið á leit við Fjallabyggð, að það hlutist til um við eigendur Norðurgötu 4b að þeir sinni eðlilegu viðhaldi eigna sinna, þannig að Norðurgötu 4a standi ekki tjón af vanrækslu eigenda Norðurgötu 4b Siglufirði.

Bæjarráð óskar eftir umsögn deildarstjóra tæknideildar um málið.