Umsókn um uppsetningu vinnubúða á flugvallarsvæði, Siglufirði

Málsnúmer 1508034

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar - 188. fundur - 19.08.2015

Köfunarþjónustan ehf. óskar eftir leyfi til að setja upp vinnubúðir við flugstöðina á Siglufirði í ágúst 2015. Við verklok á uppsetningu stoðvirkja sem eru áætluð í september 2018, verða búðirnar teknar niður og öll ummerki um þær fjarlægðar. Alls eru þetta 10 gámar sem eru hver um sig 6 metrar á lengd, 2.5 metrar á breidd og 2,2 metrar á hæð, hvítir að lit.

Erindi samþykkt.