Álagning fasteignagjalda

Málsnúmer 1505061

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 395. fundur - 02.06.2015

Lagt fram bréf íbúðareigenda, dagsett 26. maí 2015, vegna álagningu fasteignagjalda, þar sem þess er óskað að eftirstöðvar álagningar verði felldar niður.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu og og samþykkir drög að svarbréfi deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármála.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 398. fundur - 23.06.2015

Á 395. fundi bæjarráðs frá 2. júní 2015, var lagt fram bréf íbúðareigenda vegna álagningu fasteignagjalda, þar sem þess er óskað að eftirstöðvar álagningar verði felldar niður.
Bæjarráð sá sér ekki fært að verða við erindinu.

Í bréfi íbúðaeiganda í kjölfar afgreiðslu bæjarráðs, dagsett 15. júní 2015, er ítrekuð krafa um niðurfellingu.

Bæjarráð ítrekar fyrri ákvörðun.