Kauptilboð - Bylgjubyggð 57 Ólafsfirði

Málsnúmer 1505012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 391. fundur - 05.05.2015

Lagt fram kauptilboð í Bylgjubyggð 57, Ólafsfirði.
Bæjarráð samþykkir að gera tilboðsgjafa gagntilboð.

Jafnframt samþykkir bæjarráð að veita deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála umboð til að ganga frá sölunni á þeim forsendum sem fram komu á fundinum.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 393. fundur - 21.05.2015

Á 391. fundi bæjarráðs, 5. maí 2015, var lagt fram kauptilboð í Bylgjubyggð 57, Ólafsfirði.
Bæjarráð samþykkti að gera tilboðsgjafa gagntilboð.

Jafnframt samþykkti bæjarráð að veita deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála umboð til að ganga frá sölunni á þeim forsendum sem fram komu á fundinum.

Fyrir liggur niðurstaða í viðræðum við tilboðsgjafa.

Bæjarráð samþykkir sölu fasteignarinnar samkvæmt forsendum niðurstöðu í viðræðum við tilboðsgjafa.