Verðkönnun vegna glerskipta í Menntaskólanum á Tröllaskaga

Málsnúmer 1504015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 388. fundur - 14.04.2015

Tæknideild Fjallabyggðar framkvæmdi verðkönnun í vinnu vegna glerskipta í Menntaskólanum á Tröllaskaga, Ægisgötu Ólafsfirði.

Lögð fram niðurstaða verðkönnunar.
Berg, Trésmíði, ÓHK og GJ Smiðir settu fram einingaverð í verkið.

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Berg ehf.