Fyrirspurn Sólrúnar Júlíusdóttur vegna Grunnskóla Fjallabyggðar

Málsnúmer 1503082

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 387. fundur - 09.04.2015

Lagt fram til kynningar svar bæjarstjóra við fyrirspurn bæjarfulltrúa Sólrúnar Júlíusdóttur vegna Grunnskóla Fjallabyggðar.

a) Hver er áætluð hagræðing á árinu 2015 af því fyrir bæjarsjóð að flytja alla starfsemi Grunnskólans á Siglufirði undir eitt þak.
b) Óskað er eftir sparnaði í launum, þó verður að undanskilja sparnað, sem hefur skapast vegna fækkunar nemenda.

Svar bæjarstjóra má sjá í framlögðu skjali.

Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum eins og fram kom á fundinum.

Bæjarráð Fjallabyggðar - 388. fundur - 14.04.2015

Lögð fram til kynningar skýrsla frá 2009 um framtíð skólamála í Fjallabyggð.

Bæjarráð samþykkir að óska eftir því að skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar og deildarstjóri fjölskyldudeildar komi á næsta fund bæjarráðs.