Nýdanskir dagar

Málsnúmer 1502098

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Fjallabyggðar - 381. fundur - 24.02.2015

Í tengslum við "Nýdanska daga" ætlar hljómsveitin Nýdönsk að heimsækja nokkur bæjarfélög með viðeigandi tónleikahaldi, samstarfi vð tónlistarskólana o.fl. sem gleður og göfgar sálina.
Í erindi sveitarinnar dagsett 10. febrúar 2015, er verið að kanna hvort færa megi fulltrúa bæjarfélagsins gjöf frá hljómsveitinni í tengslum við tónleika í Fjallabyggð 13. mars 2015.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að veita gjöfinni viðtöku.